Kaupsamningar · Afsöl · Ráðgjöf

Traust þjónusta við gerð kaupsamninga og afsala

Við sjáum um alla samninga — hvort sem þú ert fasteignasala, lögaðili eða einstaklingur. Einfalt, öruggt og faglegt.

Ásgeir Þór Ásgeirsson — Viðskiptalögfræðingur og löggiltur fasteignasali

Hvað gerum við?

FASTSAM veitir sérhæfða þjónustu á sviði fasteigna með áherslu á samninga og aðra löggerninga sem tengjast fasteignaviðskiptum. Félagið þjónustar bæði fasteignasölur, fyrirtæki og einstaklinga og kemur að verkefnum sem snúa að kaupsamningum, afsölum, samningagerð og úrlausn álita- og ágreiningsmála sem upp kunna að koma í fasteignaviðskiptum. Markmið okkar er að tryggja faglega, örugga og skilvirka framkvæmd allra skjalaferla sem fylgja kaupum og sölu fasteigna.

Þjónusta FASTSAM við fasteignasölur fer fram samkvæmt sérstökum þjónustusamningi hverju sinni og miðast gjaldtaka við hverja selda eign. Með því er kostnaður fasteignasölu tengdur beint við raunverulegan árangur og fjölda viðskipta.

Einn vettvangur fyrir alla kaupsamninga og afsöl

Fastsam var stofnað með það að markmiði að einfalda og tryggja örugga framkvæmd kaupsamninga, afsala og annarra löggerninga í fasteignaviðskiptum. Áhersla Fastsam hefur verið að skapa skilvirkt og traust ferli þar sem fagmennska, nákvæmni og hagsmunir viðskiptavina eru í fyrirrúmi á öllum stigum málsins.

Á síðustu árum hafa fasteignasölur í auknum mæli kosið að útvista samninga- og skjalagerð, enda getur rekstur sérhæfðrar innanhússdeildar verið bæði kostnaðarsamur og tímafrekur. Með þjónustu Fastsam fá samstarfsaðilar aðgang að sérhæfðri þekkingu og reynslu án þess að bera fastan rekstrarkostnað sem fylgir slíkri starfsemi.

Starfsfólk FASTSAM býr yfir víðtækri reynslu af skjalagerð og umsýslu fasteignaviðskipta og vinnur markvisst að því að tryggja skilvirka framkvæmd, vandaða frágang skjala og örugga framvindu mála. Með útvistun geta fasteignasölur jafnframt dregið úr rekstrarkostnaði, einfaldað umsýsluferla og aukið sveigjanleika í starfsemi sinni.

Öryggi

Öll gögn og samningar meðhöndluð af kostgæfni og trúnaði.

Skilvirkni

Fljótleg og skipulögð vinnsla samninga frá upphafi til enda.

Sérfræðiþekking

Reynslumikið teymi sem þekkir fasteignaviðskipti til hlítar.

Gagnsæi

Skýr verðlagning og opin samskipti alla leið.

Við erum tilbúin að aðstoða þig

Hafir þú áhuga á frekari upplýsingum um þjónustu FASTSAM eða vilt bóka kynningarfund, er þér velkomið að hafa samband við okkur. Við svörum eins fljótt og auðið er.

Tölvupóstur info@fastsam.is
Heimilisfang

Laugavegur 1, 101 Reykjavík

Senda fyrirspurn

⚡ Powered by hlekkur.io

Skjalagerð og löggerningar vegna fasteignaviðskipta

Sérhæfð samningsþjónusta fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Við sjáum um alla skjalagerð tengda fasteignaviðskiptum — frá fyrstu drögum að samningi til fullfrágenginnar þinglýsingar.

Þjónustan er óháð fasteignasölu og hentar sérstaklega þegar aðilar vilja faglega samningagerð án milligöngu fasteignasölu.

Kaupsamningar

Afsöl og eignayfirfærsla

Þjónusta Verð
Gerð afsals 35.000 kr.
Afsal, lögskilauppgjör og þinglýsingarumsjón 50.000 kr.

Löggerningar tengdir fasteignum

Þjónusta Verð frá
Einfald veðskuldabréf 50.000 kr.
Eignayfirlýsing vegna skilnaðar 60.000 kr.
Gerð forkaupsréttar 50.000 kr.
Kaupréttarsamningur 60.000 kr.
Kaupmáli 50.000 kr.
Leigusamningur (sérsniðinn) 50.000 kr.
Samkomulag milli eigenda 30.000 kr.
Eignayfirfærslur innan fjölskyldu 30.000 kr.

Viðbótarþjónusta

Þjónusta Verð
Hraðafgreiðsla (48 klst.) +25%
Ráðgjöf 19.900 kr./klst
Fundur (staðfundur/fjarfundur) 14.900 kr.

Mikilvægt að vita

Verð miðast við hefðbundin fasteignaviðskipti milli einstaklinga. Ef umfang eða eðli viðskipta krefst aukinnar vinnu — svo sem vegna félaga, sérskilmála, flóknara greiðslufyrirkomulags eða annarra sérlausna — getur verð tekið breytingum samkvæmt samkomulagi áður en vinna hefst. Öll verð eru án VSK nema annað sé tekið fram.

Vilt þú fá tilboð?

Hafðu samband og við sendum þér verðtilboð án skuldbindinga.

Hafa samband

Fagleg gerð kaupsamninga og afsala

Skjalaundirbúningur og gerð kaupsamninga er einn mikilvægasti þáttur fasteignaviðskipta, enda marka þessi skjöl lagalegan grundvöll viðskiptanna og tryggja réttindi og skyldur bæði kaupanda og seljanda. Hjá FASTSAM er lögð rík áhersla á nákvæmni og örugga framkvæmd við gerð samninga og annarra löggerninga sem tengjast fasteignaviðskiptum.

Við sjáum um undirbúning, samningagerð og frágang kaupsamninga og afsala með það að markmiði að tryggja skýrt og gagnsætt ferli frá samþykktu tilboði til fullnaðarafhendingar eignar. Sérstök áhersla er lögð á að allar forsendur viðskipta séu rétt fram settar, samningar endurspegli raunverulegt samkomulag aðila og að öll formsatriði uppfylli gildandi lög og reglur.

Með faglegri samningagerð er dregið úr áhættu á misskilningi, ágreiningi eða lagalegum álitaefnum síðar í ferlinu. FASTSAM annast jafnframt samskipti við hlutaðeigandi aðila eftir þörfum, þar á meðal fasteignasala, lánastofnanir og opinberar stofnanir, til að tryggja skilvirka framvindu mála og örugga þinglýsingu skjala.

Hjá FASTSAM starfa löggildir fasteignasalar með víðtæka reynslu af fasteignaviðskiptum og samningagerð, sem tryggir að hver samningur sé unninn af sérfræðingum sem þekkja bæði lagalega og hagnýta þætti viðskiptanna. Markmið okkar er að veita trausta og áreiðanlega þjónustu þar sem öryggi, fagmennska og hagsmunir viðskiptavina eru ávallt í forgrunni.

Gerð kaupsamninga

Við sjáum um undirbúning, samningagerð og frágang allra skjala með áherslu á nákvæmni og örugga framkvæmd þannig að réttindi og skyldur samningsaðila séu skýr og viðskiptaferlið gangi hnökralaust fyrir sig.

Útgáfa afsala

Við sjáum um afsöl, útbúum lögskilauppgjör og gerum upp lögveð milli aðila og þinglýsum afsali.

Löggerningar

Við aðstoðum við alla gerð samninga og annarra löggerninga sem við koma fasteignaviðskiptum.

Þinglýsing

Við sjáum um að þinglýsa öllum skjölum, sækja úr þinglýsingu og koma í kaup að þinglýsingu lokinni.

Yfirferð samninga

Endurskoðun og leiðrétting á eldri eða drögum að samningum.

Fyrir einstaklinga

Endurskoðun skjala og yfirferð samnings — einföld og skýr þjónusta fyrir kaupendur og seljendur.

Fyrir fasteignasölur og lögaðila

Sérsniðin þjónusta og viðskiptalausnir fyrir fagaðila.

Þarft þú samning eða afsal?

Hafðu samband og við aðstoðum þig í gegnum ferlið.

Hafa samband

Nýjustu fréttir og fróðleikur

Hér deilum við gagnlegum upplýsingum um fasteignaviðskipti, lagabreytingar og ábendingum sem nýtast kaupendum og seljendum við kaup og sölu.

15. febrúar 2026

Hvað þarf að hafa í huga við kaup á fasteign?

Kaup á fasteign er ein stærsta fjárhagsleg ákvörðun sem flestir taka. Hér fara helstu atriðin sem kaupendur ættu að hafa í huga áður en þeir skrifa undir kaupsamning.

Lesa meira →
28. janúar 2026

Munurinn á kaupsamningi og afsali

Margir rugla saman þessum tveimur skjölum. Hér útskýrum við muninn og hvers vegna bæði eru nauðsynleg í fasteignaviðskiptum.

Lesa meira →
10. janúar 2026

Nýjar reglur um þinglýsingu 2026

Frá og með áramótum tóku gildi nýjar reglur varðandi þinglýsingu fasteignasamninga. Hér er yfirlit yfir helstu breytingar.

Lesa meira →